Guðmundur Guðmundsson (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júlí 2012 kl. 22:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2012 kl. 22:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðmundur Guðmundsson''' sjómaður í Lambhaga, fæddist 10. júlí 1874 og drukknaði 10. janúar 1912.<br> Foreldrar hans voru Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 1846 ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Guðmundsson sjómaður í Lambhaga, fæddist 10. júlí 1874 og drukknaði 10. janúar 1912.
Foreldrar hans voru Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 1846 og Guðmundur Brandsson, f. 1846, síðar búandi hjón í Seli í A-Landeyjum.
Meðal systkina Guðmundar í Lambhaga var Geir á Geirlandi.
Kona Guðmundar var Sigríður Sigurðardóttir, f. 1874. Hún bjó ekkja í Lambhaga 1920 með dóttur sinni Sigríði Lilju Guðmundsdóttur 9 ára.
Guðmundur var háseti á v/b Íslandi hjá mági sínum Sigurði í Frydendal. Þann 10. janúar 1912 reri skipshöfnin út að bátnum á bóli til að aðgæta öryggi hans í ofveðri, sem geisaði. Á leiðinni út að bátnum fórst hún. Hana skipuðu, auk Sigurðar og Guðmundar, Magnús Ingimundarson á Hvoli, Einar Halldórsson í Sandprýði, Hans Einarsson og Vilhjálmur Jónsson frá Norðfirði. Öll líkin rak.


Heimildir

  • Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum í marz MCMLII.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.
  • Manntal 1920.