Sigurbergur Hávarðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2012 kl. 10:02 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2012 kl. 10:02 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbergur Hávarðsson rafeindavirki, síðar í Kópavogi, f. 12. nóv. 1927.
For.: Hávarður Þórðarson, f. 1902 og barnsmóðir hans Guðfinna Einarsdóttir, f. 1906.
Stjúpfaðir Sigurbergs var Þórður Elías Sigfússon, f. 1900.

Sigurbergur

Sigurbergur ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður. Hann hóf störf í rafvirkjun hjá Haraldi Eiríkssyni, lauk námi í útvarpsvirkjun (rafeindavirkjun) hjá Viðgerðarstofu Útvarpsins í Reykjavík 1950.
Hann vann síðan við rafeindavirkjun í Eyjum til goss 1973. Hjá Heimilistækjum ehf. í Reykjavík vann hann í allmörg ár, og kennari við Iðnskólann í Reykjavík var hann frá 1977-1998.
Kona (17. apríl 1954): Anna Petrína Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 30. sept. 1930.
Börn þeirra:

  1. Eyþór, f. 1954,
  2. Ómar, f. 1958,
  3. Ívar, f. 1963,
  4. Edda, f. 1965,
  5. Ester, f. 1968.

Heimildir