Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Sængurkonusteinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2011 kl. 19:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2011 kl. 19:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: <br> <big><big><center>SÆNGURKONUSTEINN</center></big></big> <br> SKAMMT fyrir ofan bæinn í Vestmannaeyjum er steinn nokkur, tvær til þrjár stikur á hæð. Um hann er sögn sú, s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


SÆNGURKONUSTEINN


SKAMMT fyrir ofan bæinn í Vestmannaeyjum er steinn nokkur, tvær til þrjár stikur á hæð. Um hann er sögn sú, sem hér fer á eftir:
Þegar Tyrkir rændu síðast í Eyjunum, fundu þeir við steininn konu, sem hafði alið barn. Annar vildi drepa hana, en hinn skar laf af skikkju sinni og gaf henni til að sveipa barnið í, og bjargaði hann bæði konunni og barninu.

(Vísir 3. 9. 1914).