Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. desember 2011 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. desember 2011 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit


Reimleikar í Yztakletti.


Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugadóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utan dyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn úti fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
(Almenn sögn).