Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Reimleikar í Yztakletti (JGÓ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. nóvember 2011 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. nóvember 2011 kl. 21:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: <br> <big><big><center>Reimleikar í Yztakletti.</center></big></big> <br> Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var [[Guðrún Guðl...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


Reimleikar í Yztakletti.


Jafnan hefur verið talið, að reimt væri í Yztakletti. Einhverju sinni var Guðrún Laugadóttir við heyskap í Yztakletti. Var hún þar ein manna, en hafði hund sinn með sér. Svaf hún í veiðimannabólinu, en hundurinn lá utan dyra. Nótt eina vaknaði hún við hávaða mikinn úti fyrir. Var hundurinn alveg trylltur. Er þetta hafði gengið nokkra stund, varð allt í einu dauðaþögn. Í sömu svifum var hundinum fleygt inn til hennar. Þegar hún fór að gæta að, sá hún, að hundurinn var steindauður. Hafði hann verið skorinn á háls.
(Almenn sögn).