Fornleifar
Um Fornleifar í Eyjum
Eftirfarandi fornleifar eru friðlýstar á Heimaey.
- a. Hinn gamli umbúnaður við lindina í Herjólfsdal.
- b. Leifar hins forna bæjar í Herjólfsdal og tveggja gamalla búða þar hjá.
- c. Leifar tveggja gamalla kofa um 400 skref fyrir sunnan tóftirnar í Herjólfsdal. Sbr.Árb. 1925-1926: 18-21.
- (d. Hinn gamli kirkjugarður á Ofanleiti.) (7 Garðurinn fór undir flugvöll og var friðlýsing felld niður 13.07.1970. Þinglýsing afmáð 28.07. 1970. (Þjms. Drög að spjaldskrá um friðlýstar fornleifar).)
- e. Skansinn; hin gömlu mannvirki þar.
- f. Fiskabyrgin gömlu sunnan í Hánni, fyrir austan Herjólfsdal. Sbr. Árb. 1907: 6-14. Skjal undirritað af MÞ 25.10.1930. Þinglýst 27.01.1931.
Skýrsla sem Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir unnu árið 2002.
Fyrri hluti - heimildir fyrir Vestmannaeyjar
Heimildir
- Fornleifavernd ríkisins, 1990, Skrá um friðlýstar fornleifar [1]
Saga: Jarðsaga — Tyrkjaránið — Surtseyjargosið — Heimaeyjargosið — Landnám — Útgerð — Verslun — Herfylkingin |