Blik 1980/Félagar Stalins (vísa)
Tveir „Félagar Stalins“ áttu eitt sinn í orðasennu á fundi í Eyjum. Öðrum þótti hinn vera orðinn blendinn í „trúnni“ og kvað á fundinum:
- Þér er vorkunn vinurinn
- að varpa svo burt ærunni,
- að eftir standi úlfshárin
- undan sauðagærunni.