Blik 1978/Liðin tíð kveður framtíð og bæjarstjórn færðar þakkir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. október 2010 kl. 18:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. október 2010 kl. 18:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1978/Liðin tíð kveður framtíð og bæjarstjórn færðar þakkir“ [edit=sysop:move=sysop])
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1978



Liðin tíð kveður framtíð
og óskar allra heilla



ctr


Liðin tíð kveður framtíð og óskar allra heilla í starfi.


Bæjarstjórn færðar þakkir


ctr


Um leið og ég fel ritinu mínu, Bliki, að geyma þessa mynd af okkur hjónunum, leyfi ég mér að færa bœjarstjórn Vestmannaeyja innilegustu þakkir okkar hjóna fyrir þann heiður, sem bœjarstjórnin auðsýndi mér og okkur, er hún einróma kaus mig heiðursborgara Vestmannaeyja 12. apríl sl. fyrir störf mín í kaupstaðnum undanfarin 50 ár.
Jafnframt var konan mín heiðruð með blómagjöfum og farið hlýjum viðurkenningar orðum um þátt hennar í störfum mínum frá upphafi, en við fluttum til Eyja haustið 1927.
Enn er það of algeng yfirsjón, að minnast naumast eða alls ekki á þátt eiginkonunnar í starfi eiginmannsins, þó að sá þáttur sé oft býsna gildur og stundum „rauði þráðurinn“, ef allt væri það grandskoðað til dýpstu róta.




ctr


Kunn sœmdarhjón í Eyjum, Jónas Sigurðsson frá Skuld og frú Guðrún Ingvarsdóttir.
Við hjónin þökkum tryggð þeirra og vinsemd um 40 ára bil.