Blik 1954/Kveðja frá vini
- HALLDÓR BRYNJÓLFSSON
- HALLDÓR BRYNJÓLFSSON
- F. 12. jan. 1873, d. 28. jan. 1948
- Kveðja frá vini
- Lag: Ó, þá náð að eiga Jesúm.
- Lífs þíns fley er heim til hafnar
- horfið yfir dauðans ós.
- Augu þín um áratugi
- aldrei sáu dagsins ljós.
- Samverunnar sælustundir
- sönnum vini þakka ber.
- Hjartans þökk og hlýja kveðju
- hinzta sinn ég færi þér.
- Lífs þíns fley er heim til hafnar
- Blindur maður bú sér reisir,
- byggir hús og ræktar frón.
- Ekki starfa öllu betur
- aðrir menn, er hafa sjón.
- Allir hljóta að elska, virða
- iðjusaman heiðursmann,
- sem frá æskualdri blindur
- afrek slík með sóma vann.
- Blindur maður bú sér reisir,
- Burt frá heimsins böli þungu,
- burt frá jarðar eymd og rýrð
- önd þín leið að unnum sigri
- inn í bjarta himins dýrð.
- Eftir lífsins mæðumyrkur,
- morgunroðans ljós þér skín,
- og í drottins ástarörmum
- eilíf sæla bíður þín.
- Burt frá heimsins böli þungu,
- Höf. kvæðisins mun vera
- Sigurbjörn Sveinsson, skáld.
- Höf. kvæðisins mun vera