Oddur Eyjólfsson
Oddur Eyjólfsson var prestur að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum frá 1674 til 1732. Foreldrar hans voru Eyjólfur Narfason á Þorláksstöðum í Kjós og kona hans Ragnaheiður Oddsdóttir. Hann lærði í Skálholtsskóla, fékk veitingu fyrir Kirkjubæjarprestakalli 1674 og þjónaði því til æviloka 1732 og hafði þá þjónað prestakallinu í 58 ár. Hann var orðinn 83 ára gamall er hann andaðist.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.