Þorsteinn Jónsson (þingmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:39 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:39 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn Jónsson, hreppstjóri og alþingsmaður.

Þorsteinn Jónsson var hreppstjóri og bóndi í Nýjabæ. Hann var alþingismaður Vestmannaeyja frá 1875 til 1886. Þorsteinn fæddist í Sólheimum í Mýrdal þann 11. maí 1840 og lést í Reykjavík 28. ágúst 1886. Foreldrar Þorsteins voru Jón Eyjólfsson (fæddur 7. júlí 1815, dáinn 26. maí 1900) bóndi í Ytri-Sólheimum, og konu hans, Karitas (fædd 1815, Dáin 28. Mars 1985) dóttir Þorsteins bónda í Sólheimum Þórsteinssonar. Þorsteinn kvæntist þann 1. nóvember 1861 henni Krístínu (fædd 5. nóvember 1817, dáin 10 júní 1899) dóttir Einars bónda á Vilborgarstöðum Sigurðssonar og konu hans Vigdísar Guðmundsdóttur. Þorsteinn var bóndi í Nýjabæ í Vestmannaeyjum frá 1861 til æviloka.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.