Blik 1946. Ársrit/Svarti engillinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2009 kl. 20:11 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2009 kl. 20:11 eftir Saerun (spjall | framlög) (Ný síða: '''Svarti engillinn'''<br> (Smásaga) Ölvaður maður, ofurölvi, ráfar um nótt austur að Kornhól vissra erinda. — Hann staulast austur traðirnar með stuðningi hleðslunnar. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Svarti engillinn
(Smásaga)

Ölvaður maður, ofurölvi, ráfar um nótt austur að Kornhól vissra erinda. — Hann staulast austur traðirnar með stuðningi hleðslunnar. Þegar hana þrýtur, hrópar hann: „Meira grjót, lengri garð, lengri hleðslu!“ — Hann fálmar út í myrkrið með lausu hendinni. Brátt birtist honum svartur engill, sem réttir honum svörtu hendina sína og leiðir hann til húsa. Þar sökkvir hann honum að fullu í eiturpyttinn. Næsta dag leggur svarti engillinn inn í banka marga blóðpeninga. Það eru „mjólkuraurarnir“ hans.

Þ. Þ. V.