Páll Zóphóníasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 16:08 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 16:08 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Páll Zóphaníasson við Pompei Norðursins.

Páll Hjaltdal Zóphóníasson fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann er sonur Zóphaníasar Pálssonar, skipulagsstjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Ulleman), háskólakennara.

Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðfjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg á árunum 1967-1972. Páll starfaði svo sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Hann tók við sem bæjarstjóri á árunum 1976-1982. Síðan þá hefur hann rekið ráðgjafar- og teiknistofu, Teiknistofa PZ, í Vestmannaeyjum.

Páll er félagsforingi skátafélagsins Faxi og er formaður Norræna félagsins í Vestmannaeyjum. Hann er ennfremur sænski konsúllinn í Vestmannaeyjum. Hann er giftur Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin Zóphónías og Sif.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason: Við Ægisdyr. Saga Vestmannaeyjabæjar, seinna bindi. Reykjavík, 1991.