Saltaberg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 09:05 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 09:05 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einnig er til samnefnt hús sem heitir eftir klettinum sem lýst er í þessari grein. Sjá Saltaberg.


Saltaberg er klettur sem stendur í Dalfjalli að sunnanverðu, fyrir ofan tjörnina í Herjólfsdal. Hann dregur nafn sitt frá útliti sínu, en hvítar rákir í klettinum minna á salt.

Kletturinn er grasi vaxinn að ofanverðu, og honum hefur verið reist fánastöng sem notuð er á Þjóðhátíð og við ýmis önnur hátíðleg tilefni.