Blik 1938, 3. tbl./Forustumenn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. október 2009 kl. 19:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. október 2009 kl. 19:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: left|100px||Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum center|100px|Séra Jes A. Gíslason Blik birtir að þe...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Blik birtir að þessu sinni myndir af tveim helztu forustumönnum stúkunnar „Báru,“þeim séra Jes A. Gíslasyni kennara og Magnúsi Guðmundssyni bónda.
Magnús hefur starfað í “Báru” samfleytt í 45 ár og síra Jes í 31 ár. Báðir eru þeir fæddir og uppaldir í Eyjum, jafngamlir, fermdir saman (þá aðeins þeir tveir), og starfað hafa þeir saman í sönnum bróðurhug með staðfestu og einlægni fyrir sitt hjartans mál, bindindismálið. Margir ágætir menn og konur hafa hjer lagt hönd á plóginn með þeim, en þeir hafa fastast og lengst staðið og starfað allra Goodtemplara í Eyjum.

Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum
Magnús Guðmundsson, Vesturhúsum
Séra Jes A. Gíslason
Séra Jes A. Gíslason