Blik 1937, 1. tbl./Vilji nemendanna

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2009 kl. 15:46 eftir Saerun (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2009 kl. 15:46 eftir Saerun (spjall | framlög) (Ný síða: '''Vilji nemendanna.''' Nemendur Gagfræðaskólans í Vestmannaeyjum gerðu með sér svofelda samþykkt á fundi sínum 21. febrúar s. l.<br> 1. Nemendur skólans allir sem einn, vil...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilji nemendanna.

Nemendur Gagfræðaskólans í Vestmannaeyjum gerðu með sér svofelda samþykkt á fundi sínum 21. febrúar s. l.
1. Nemendur skólans allir sem einn, vilja gera sitt fremsta til að efla starf skólans í framtíðinni, og hvetja unglinga til þess að sækja hann og rækja, þar sem þeir álíta hann í alla staði þess verðan.
2. Nemendunum er útgáfa skólablaðsins „Bliks“ metnaðarmál, og vilja gera allt, sem í þeirra valdi og mætti stendur til þess að hjálpa kennurum skólans til um útgáfu þess.
3. Nemendur álíta, að þeir, sem auglýsa í blaðinu, séu velgerðarmenn nemendafélagsins og skólans, þar sem þeir með auglýsingunum veita blaðinu fjárhagalegan stuðning. Nemendur tjá þessum mönnum bestu þakkir sínar og álykta, að þeir geti ekki á annan hátt betur endurgoldið þeim stuðninginn en að minnast velvilja þeirra eftir megni, þegar nemendur í orði eða verki geta haft áhrif á viðskipti heimila sinna.
Í stjórn M. G. í Ve.
Baldur Þorgilsson. Erla Ísleifsdóttir. Sigr. Bjarnad.