Blik 1976/Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. ágúst 2009 kl. 12:41 eftir Elvario (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. ágúst 2009 kl. 12:41 eftir Elvario (spjall | framlög) (→‎5. Kaupfélagið Drífandi)
Fara í flakk Fara í leit

5. Kaupfélagið Drífandi

Verzlunarhúsið Drífandi, nr. 2 við Bárustíg. Hús þetta byggði Kaupfélagið Drífandi árið 1921.
Kaupfélagsstjórahjónin Ísleifur Högnason frá Baldurshaga og frú Helga Rafnsdóttir með börnum sínum. Frá vinstri: Gísli, Erla og Högni.
Vörugeymsluhús Kaupfélagsins Drífanda, nr. 42 við Strandveg.
Kafsnjórinn mikli maí 1928
Bjarni Jónsson Kaupfélagsstjóri

„Félagar Stalíns" koma til sögunnar.

Vertíðin 1920 fór í hönd. Atvinnulífið færðist í aukana. Hvað varð nú helzt gert til hagsbóta „hinum vinnandi lýð?" - Þessari spurningu veltu þeir fyrir sér, sem beita vildu kröftum sínum til hagsbóta þeim, sem erfiðast áttu uppdráttar til framfærslu sér og sínum í hinum unga kaupstað, sem þegar var orðinn stærsta útgerðarstöð á Íslandi.

Fyrir þrem árum höfðu þeir stofnað Verkamannafélagið Drífanda, sem reyndi eftir megni að vinna að bættum hag verkafólksins, þó að lítið hefði til þessa á unnizt.

Kaupfélagið Bjarmi, félagssamtök nokkurra útvegsbænda, hafði dafnað vel þessi sex ár, síðan það var stofnað til sóknar og varnar gegn ásælni vissra manna í viðskiptalífinu, þó að þeir kaupfélagsmenn þættust vissulega eiga samleið með kaupmönnum bæjarins í hagsmunamálum sínum gagnvart verkalýðnum. Sama mátti með sanni segja um Kaupfélagið Fram, sem nokkrir útvegsbændur höfðu starfrækt til hagsbóta sér undanfarin þrjú ár. Víst var það hugsanlegt að stofna mætti og starfrækja kaupfélag til sóknar og varnar í hagsmunamálum verkamanna og smáútvegsbænda, sem ekki áttu þess kost að njóta hagsbóta í hinum kaupfélögunum í kaupstaðnum. Og ungan efnismann höfðu þeir á takteinum til þess að beita sér fyrir kaupfélagsstofnuninni og starfrækja hana. Það var Ísleifur Högnason, sonur hreppsstjórahjónanna í Baldurshaga, Högna Sigurðssonar og frú Mörtu Jónsdóttur.

Þriðjudaginn 23. marz 1920 komu nokkrir búsettir heimilisfeður í Vestmannaeyjum saman á fund í Þórshamri, kvikmyndahúsi Þorsteins Jónssonar (Johnson), þ. e. húsinu nr. 28 við Vestmannabraut. Ætlunin með fundi þessum var að stofna kaupfélag. Fundinn sátu 66 þeirra manna, sem heitið höfðu stuðningi við hugsjón þessa undanfarna daga. Gengið hafði verið á milli þeirra og stofnun kaupfélagsins rædd við þá. Allir þessir fundarmenn og margir fleiri höfðu heitið fjárframlögum til stofnunar og starfrækslu félagsins. Og forgöngumenn hugsjónarinnar höfðu þegar samið uppkast að lögum fyrir hið væntanlega kaupfélag, og var það lagt fram til samþykktar á fundinum. Það var samþykkt þar athugasemdalaust með öllum greiddum atkvæðum. Fullkomin eining var ríkjandi á fundi þessum og meðvitund fundarmanna skýr og glögg um tilgang félagsins. Það skyldi verða sókn og vörn hinna fátækustu í bæjarfélaginu í daglegri lífsbaráttu þeirra.

Þriðja grein félagslaganna ber það með sér, að hér var fyrst og fremst um stofnun pöntunarfélags að ræða, sem svo smám saman þróaðist og efldist og gerðist kaupfélag, eins og hugtakið felst nú í orði því í íslenzku máli. Hér birti ég hin fyrstu lög þessa kaupfélags, sem raunar er kallað hlutafélag eins og kaupfélagið Herjólfur og af sömu ástæðum. Framlög félagsmanna, andvirði hlutabréfa, sem þeir keyptu, varð það fjármagn til reksturs og veltu, sem hagsmunafélög þessi urðu að grundvalla tilveru sína og starf á, því að reksturslán til vörukaupa lágu þá ekki á lausu, þar sem segja mátti með sanni, að öll bankastarfsemi í landinu væri á bernskuskeiði og fjármagnseign þjóðarinnar sáralítil í heildinni og sumstaðar engin.

Greinar félagslaganna eru hér ýmist birtar orðréttar eða greint efni þeirra.


l. gr. Félagið heitir Hf. Drífandi. Heimili þess og varnarþing eru í Vestmannaeyjum.

2. gr. Tilgangur félagsins er að útvega félagsmönnum sem beztar vörur með svo góðu verði, sem unnt er, og að koma innlendum afurðum í svo hátt verð sem auðið er.

3. gr. Skyldur er hver félagsmaður, er pantar vörur í félaginu, að veita þeim móttöku. þegar hann hefur fengið tilkynningu frá stjórn félagsins um að vörurnar séu komnar til félagsins

4. gr. Félagsmaður er hver sá, sem skrifar undir lög félagsins og kaupir eitt hlutabréf, er hljóðar upp á 100 kr. Skal fé því varið til húsakaupa, verzlunaráhalda og annarra nauðsynja félagsins.

5. gr. Í 5. grein laganna eru almenn gildandi ákvæði um hlutabréf, eigendaskipti á þeim, og svo hvernig að skal fara, ef þau glatast.

6. gr. Í þessari grein eru almenn ákvæði um aðalfund, sem halda skal fyrir apríllok ár hvert. Aðalfundir eru lögmætir, ef meiri hluti stjórnarinnar og annarra félagsmanna er mættur. „Hver hluthafi hefur eitt atkvæði fyrir eitt hlutabréf, 2 atkvæði fyrir 5 hlutabréf og þar yfir."

7. gr. A fundinum má ræða og taka ákvörðun um hvað eina, sem félagið varðar. Á aðalfundi skal leggja fram til úrskurðar reikninga félagsins:

a) Rekstursreikning,

b) Efnahagsreikning frá næstliðnu ári með fylgiskjölum, ásamt athugasemdum endurskoðenda. Þá skal og kjósa stjórn og tvo endurskoðendur til eins árs.

8. gr. Varasjóð skal stofna og auka með því að leggja í hann ágóða þann, sem verður af rekstri félagsins að frádregnum þeim vöxtum, sem aðalfundur kann að ákveða til hluthafa.

9. gr. Stjórnin skal skipuð 5 mönnum, sem eru formaður, varaformaður og ritari og tveir meðstjórnendur. Auk þess skal kjósa 2 menn til vara, er sæti taka í stjórninni, þegar einhver úr henni er forfallaður.

10. gr. Stjórnin annast framkvæmdir allra félagsmála, reikningsfærslu félagsins og viðskipti þess utanlands og innan. Hún boðar til allra funda í félaginu, annast um að allar ályktanir fundarins séu bókaðar í fundarbók félagsins, stýrir fundum, heldur stjórnarfundi, þegar þurfa þykir, og eru þeir fundir lögmætir, sé meiri hluti stjórnarinnar mættur.

11. gr. Allir samningar eða skuldbindingar, sem stjórnin gerir eða undirskrifar fyrir félagsins hönd, eru bindandi fyrir félagið; þó skal stjórnin um öll stærri mál leita álits félagsmanna.

12.gr. Með því að enginn félagsmaður má skulda í bókum félagsins fyrir pöntun eða vörukaup lengur en stjórnin ákveður í hvert skipti, getur stjórnin heimtað fyrirfram tryggingu af einstökum félagsmönnum nema lögmætur fundur samþykki með atkvæðagreiðslu pöntun hans.

13. gr. Á skuldum félagsins bera allir félagsmenn ábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn.

14. gr. Þessi grein fjallar um félagsslit, sem eru lögleg, ef 2/3 allra félagsmanna sitja fund þann, sem afræður þau, og 2/3 fundarmanna samþykkir þau. Verði einhverjar eignir afgangs, þegar allar skuldir félagsins hafa verið greiddar, skiptist afgangurinn jafnt á stofnbréf allra félagsmanna.

15. gr. Lögum félagsins má ekki breyta nema á lögmætum félagsfundi og þá með 2/3 fundarmanna.

Hf. Drífandi, sem síðar bar nafnið Kaupfélagið Drífandi, er tvímælalaust eitt allra merkasta innkaupa- og sölufélag, sem fátæk alþýða hér í Vestmannaeyjum hefur stofnað til nokkru sinni til þess að losa um klafa og steinbítstök, sem vissir aðilar í bæjarfélaginu höfðu á allri framleiðslu og verzlun, og þá einnig á atvinnu alls þorra heimilisfeðra í verkamanna- og sjómannastétt. Það vald öðluðust þeir í krafti fjármagns, sem þeir einir fengu tök á að hagnýta sér og græða á.

Fyrsti fundur kaupfélagsstjórnarinnar eftir stofnfundinn var haldinn heima í Baldurshaga (nr. 5 við Vesturveg) á heimili þeirra hjóna Högna hreppsstjóra Sigurðssonar og frú Mörtu Jónsdóttur, foreldra Ísleifs Högnasonar, framkvæmdastjóra hins nýstofnaða kaupfélags. Á fundi þessum, sem haldinn var 2. apríl 1920, var afráðið að taka á leigu húsnæði í kjallara íbúðarhússins Valhallar (nr. 43 við Strandveg). Eigandi þessa húss þá var Ágúst Gíslason frá Hlíðarhúsi í kaupstaðnum, og var það byggt 1912. Jafnframt var afráðið að ganga fast fram um það að safna fé (hlutafé) hjá félagsmönnum, svo að kaupfélagið hefði nokkurt veltufé til umráða. Sparisjóður Vestmannaeyja hinn eldri hafði þá starfað í 27 ár en var lítils megnugur til þess að fullnægja öllum fjármagnsþörfum Eyjabúa, með því að vélbátaútvegurinn í kaupstaðnum hafði vaxið gífurlega á undanförnum árum og þörf hans á veltufé mikið meiri en Sparisjóðurinn gat fullnægt. Úr því skyldi bætt.

Einmitt í aprílmánuði þetta ár (1920) var stofnun bankaútibús í Vestmannaeyjum í undirbúningi. Þá var jafnframt til umræðu að sameina gamla sparisjóðinn þeirri bankastofnun. Innan tíðar var þetta framkvæmt.

Til þess að fá veltufé, þurftu kaupfélögin í Eyjum að safna peningum úr vasa félagsmanna til þess að nota í þágu félagsstarfsins, t. d. til innkaupa á vörum o. s. frv, þar sem engin tök voru á að fá peningalán í bænum til þeirra hluta. Þetta fé var kallað hlutafé og gefin út bréf til staðfestingar því. Þess vegna voru þessi verzlunarsamtök útvegsbænda annars vegar og verkamanna hins vegar ýmist nefnd hlutafélög eða kaupfélög.

Vorið 1920, hinn 8. apríl, birti stjórn Drífanda, hins nýstofnaða kaupfélags verkamanna og smáútvegsbænda i hinum unga kaupstað, svohljóðandi tilkynningu í Skeggja, blaði Gísla J. Johnsen kaupmanns:

,,Hlutafjársöfnun

Þeir, sem hafa skrifað sig fyrir hlutum i hinu nýstofnaða kaupfélagi, hf. Drífanda, eru beðnir að greiða hluti sína til framkvæmdastjóra félagsins, Ísleifs Högnasonar í Baldurshaga, fyrir 20. maí n. k. Eftir þann tíma verður ekki tekið á móti hlutafé.

Nýjum hluthöfum gefst kostur á að vera með, þar til sú upphæð er fengin, sem félagið hefur þörf fyrir til reksturs á komandi starfsári. Geta þeir um allar upplýsingar félaginu viðvíkjandi snúið sér til einhvers okkar undirritaðra.

Vestmannaeyjum, 2. apríl 1920

Sigfús Scheving, Heiðarhvammi, Guðlaugur Hansson, Fögruvöllum, Guðmundur Magnússon, Skjaldbreið, Eiríkur Ögmundsson, Dvergasteini, og Ísleifur Högnason, Baldurshaga."

Þarna fáum við þá að vita, hverjir skipuðu fyrstu stjórn Kaupfélagsins Drífanda.

Til þess að byrja með skyldu tveir slarfsmenn vera fastir starfskraftar hins nýstofnaða kaupfélags. Ráðnir voru kaupfélagsstjórinn Ísleifur Högnason með 5000 króna árslaunum og Ólafur Sigurðsson með 3000 króna árslaunum. Báðir skyldu peir fá launauppbót, ef rekstrarafkoma félagsins leyfði það, þegar til kæmi. Ársleigan fyrir húsnæðið í Valhöll var 1800 krónur.

Ráð var fyrir gert, að húsnæðið í Valhöll, búðin og skrifstofuherbergi, yrði tilbúið til afnota 1. júní um sumarið (1920) og skyldu þá vörur komnar til Eyja og öðrum undirbúningi lokið, svo að verzlunarreksturinn gæti hafizt.

Kaupfélagsstjórinn afréð þegar að fá stjórnina til að samþykkja, að kaupfélagið yrði aðildarfélag Sambands íslenzka samvinnufélaga og réri að því öllum árum. Mál þetta var tekið fyrir á almennum félagsfundi 29. maí (1920). Þar skýrði kaupfélagsstjórinn þetta mál og stefnu samvinnufélaganna í landinu í heild. Sérstaklega var það samábyrgðin, sem var félagsmönnum þyrnir i augum. Loks samþykktu fundarmenn þessa tillögu í einu hljóði: Fundurinn felur félagsstjórninni að beiðast upptöku í Samband íslenzkra samvinnufélaga og gengst félagið undir lög Sambandsins."

Á félagsfundi þessum var einnig samþykkt að fela stjórninni að „koma upp" vörugeymsluhúsi sem fyrst og verja til þess stofnfé félagsins, hlutafénu. Formaður kaupfélagsins var kosinn Eiríkur Ögmundsson, Dvergasteini, og fimmti maður í stjórn félagsins var sjálfur framkvæmdastjórinn Ísleifur Högnason.

En þegar félagsmönnum varð ljóst, að framkvæmdastjórinn gat ekki verið í stjórn kaupfélagsins samkvæmt lögum Sambands íslenzkra samvinnufélaga, þá var skipt um mann og hlaut kosningu Guðmundur Sigurðsson í Heiðardal (nr. 2 við Hásteinsveg).

Örlagaríkt spor. Lánaviðskipti hefjast.

Þegar leið á sumarið (1920) komst stjórn kaupfélagsins ekki hjá því að mæta miðra garða útvegsbændum þeim, sem í kaupfélagið höfðu gengið, og taka af þeim fisk gegn vöruúttekt, þar sem peningar voru af mjög skornum skammti í umferð. Afráðið var að lána þeim kr. 75,00 út á hvert skippund í fyrsta flokks fiskafurðum þeirra og yrði sú upphæð tekin út í vörum. Þar með hófust lánaviðskipti kaupfélagsins, sem öðrum þræði varð því banabitinn, þegar árin liðu. En hér var úr vöndu að ráða. Útgerðarmenn skorti veltufé til kaupa á veiðarfærum, salti og fleiri nauðsynjum. Félagsmenn þeir, sem stunduðu útgerð, börmuðu sér sökum þess, að þeir gætu ekki einvörðungu verzlað við kaupfélagið sitt, ef það lánaði ekki til útgerðar. Bankalán var hvergi að fá. Og engir voru lánasjóðirnir útgerðarmönnum til styrktar og fyrirgreiðslu. En 2-3 kaupmenn í bænum höfðu allar útgerðarvörur á boðstólum, og allar fengust þær lánaðar, ef afurðirnar stæðu þeim til boða á verði, sem þeir að mestu leyti afréðu sjálfir.

Þegar leið fram á haustið 1920, fékk Kaupfélagið Drífandi tilboð í fiskafurðir. sem hér segir: Tilboð í línufisk nr. 1 kr. 230,00 hvert skpd (160 kg); í línufisk nr. 2 kr. 220,00; í netafisk nr. 1 kr. 225,00, og í netafisk nr. 2 kr. 215,00 hvert skpd. Stjórn félagsins samþykkti að taka tilboðum þessum.

Þannig var þá þessi vöruskiptavél kaupfélagsins ræst að fullu, áður en stofnár kaupfélagsins var liðið, því að innkaup á salti og veiðarfærum voru þá þegar gjörð. Þær vörur voru greiddar með verkuðum saltfiski, meðan hann hrökk til.

Stuttu eftir áramótin 1920/1921 steig stjórn Kf. Drífanda örlagaríkt spor í rekstri þess. Hún samþykkti að hefja lán á salti til félagsmanna og taka að tryggingu fyrir þeim lánum sex mánaða víxla.

Saltverðið var afráðið kr. 170.00 hver smálest.

Kaupfélagið stofnar innlánadeild

Á hinum fyrsta aðalfundi kaupfélagsins, sem haldinn var 16. marz 1921, voru gerðar ýmsar smávægilegar breytingar á lögum félagsins í samræmi við lög Sambands íslenzkra samvinnufélaga. Helztar voru breytingarnar við 8. grein félagslaganna, sem fjallaði um varasjóð félagsins. Þar voru þessi ákvæði sett inn í greinina: „Hverjum félagsmanni er heimilt að leggja svo mikið og oft, sem hann vill, í sjóðinn (þ. e. innlánadeildina). Heimilt skal þó stjórn félagsins að takmarka inneign félagsmanna í sjóðnum." - Með þessum ákvæðum var stofnað til sparifjárdeildar við félagið til þess að skapa því aukið veltufé og um leið aukna kaupgetu.

Aðalfundurinn samþykkir að greiða félagsmönnum 10% í arð af viðskiptum þeirra við félagið fyrsta starfsár þess, 1920/1921. Tíminn leið og rekstur Kaupfélagsins Drífanda færðist drjúgum í aukana.


Samábyrgð kaupfélaganna þyrnir í augum

Ákvæðin í lögum S.Í.S. um samábyrgð kaupfélaganna var félagsmönnum Kf. Drífanda áhyggjuefni, eins og ég gat um.

Í bréfi til S.Í.S. dags. í apríl 1922, benti kaupfélagsstjórinn á það, samkvæmt ósk kaupfélagsmanna, að félagsmenn hefðu keypt „hlutabréf" í kaupfélaginu til þess að skapa því veltufjársjóð. Ekki kæmi til mála að það fé yrði látið standa í nokkurri hættu gagnvart rekstri annarra samvinnufélaga í landinu, sem engin tök væru fyrir stjórn K.f.Drífanda eða framkvæmdastjóra þess að vita, hvernig rekin væru eða fylgjast með fjárhagsafkomu þeirra. Jafnframt vottaði félagsfundur Sambandinu þakklæti sitt fyrir góð og gagnleg viðskipti með óskum um framhald á þeim og svo góðrar samvinnu milli kaupfélagsins og Sambandsins.

Þetta samábyrgðarmál var öðru hvoru á dagskrá með stjórnarmönnum K.f. Drífanda sumarið 1922 og fram að aðalfundi um haustið. Hinn 1. maí (1922) sendi t. d. stjórn Kaupfélagsins Drífanda Sambandinu svohljóðandi símskeyti:


„S.Í.S., Reykjavík.

Kaupfélagið Drífandi getur eigi gengið undir samþykktir yðar frá árinu 1921, og megið þér því eigi skoða það sem deild í Sambandi íslenzkra samvinnufélaga."

Eftir að K.f. Drífandi tók að lána útgerðarmönnum þeim, sem voru félagsmenn, ýmsar útgerðarvörur, svo sem veiðarfæri og salt, fóru útistandandi skuldir félagsins bráðlega mjög vaxandi.