Jóhann Gunnar Ólafsson
Jóhann Gunnar Ólafsson fæddist 19. nóvember 1902 í Vík í Mýrdal. Foreldrar hans vpru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri og Sigríður Eyþórsdóttir. Hann varð cand. juris frá Háskóla Íslands 1927. Jóhann var kosinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í desember 1928 og gegndi því embætti til 1938. EFtir tveggja ára starf við Útvegsbankann í Vestmannaeyjum fluttist hann á Ísafjörð þar sem hann gegndi embætti sýslumanns í 25 ár.
Jóhann gaf út fjölda bóka og rita, frumsamdra, þýddra og eftir aðra.
Kona Jóhanns hét Ragna Haraldsdóttir og giftust þau í Vestmannaeyjum sama ár og Jóhann tekur við embætti bæjarstjóra hér.
Heimildir:
- Haraldur Guðnason: Við Ægisdyr. Saga Vestmannaeyjabæjar, seinna bindi. Reykjavík, 1991.