Jón Arason prestur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:58 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 13:58 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Arason, 1809 til 1810. Fæddur að Stað í Grindavík 1777. Foreldrar séra Ari Guðlaugsson, prestur að Ofanleiti og kona hans Kristín Grímsdóttir. Varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1801 og vígðist aðstoðarprestur föður síns 1805, en fékk veitingu fyrir Ofanleitisprestakalli 1809. Var hann mjög vel látinn af sóknarfólki sínu. Hann þjónaði prestakallinu í aeðins rúmt ár. Varð bráðkvaddur 10. sept 1810. Kona hans var Þorbjörg Pétursdóttir frá Gjábakka í Vestmannaeyjum Vilhjálmssonar. Þau áttu fimm börn, en aðeins tvö þeirra komust upp.


Heimildir

  • Eyjar gegnum aldirnar Guðlaugur Gíslason. ISBN 00003556930