Sigfinnur Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 10:48 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 10:48 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigfinnur Sigurðsson er fæddur 16. febrúar 1937 í Stykkishólmi. Foreldrar hans voru Sigurður Skúlason verslunarmaður í Stykkishólmi og Soffía Sigfinnsdóttir. Hann varð stúdent frá MA árið 1957 og í framhaldi af því cand. phil. frá Háskóla Íslands árið 1958. Sigfinnur öðlaðist hagfræðipróf árið 1963 frá háskóla í Marburg Lahn og Köln.

Sigfinnur starfaði við ýmis konar opinber störf, m.a. við uppbyggingu nýs fasteignamats ríkisins, var borgarhagfræðingur og var framkvæmdastjóri Sambands sunnlenskra sveitarfélaga frá 1972-75. Þá tók hann við embætti bæjarstjóra Vestmannaeyja og gegndi í tvö ár.

Kona hans er Helga Sveinsdóttir frá Þykkvabæ.


Heimildir:

Haraldur Guðnason. 1991. Við Ægisdyr, Saga Vestmannaeyja II. Reykjvík, Stofn. ISBN 00003056072