Nöjsomhed

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2009 kl. 08:30 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2009 kl. 08:30 eftir Inga (spjall | framlög) (Leiðr. ártal)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Nöjsomhed stóð við Víðisveg 7. Samkvæmt manntalinu 1892 var þetta timburhús sem Bolbroe læknir byggði árið 1833. Var þetta læknissetur og var í fyrstu kallað Doctorshús. Eftir daga læknisins bjuggu margir embættismenn í húsinu. Séra Brynjólfur Jónsson bjó í húsinu þegar hann var aðstoðarprestur á árunum 1852-1858. Í húsinu bjó Aagaard sýslumaður 1875. Þetta var pakkhús frá Brydeversluninni og stóð það austan við Jómsborg. Þetta var einnig fyrsta húsnæðið til að hýsa fyrsta Barnaskólann í Vestmannaeyjum frá árinu 1880. Síðustu árin var það notað sem verbúð handa „landmönnum“, bændum og búaliðum sem voru á vertíð í Eyjum. Nöjsomhed var rifið árið 1911. Seinna reis á lóðinni húsið Stafholt en það fór undir hraun.


Heimildir