Guðmundur Helgi Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. desember 2008 kl. 13:58 eftir Helgi161 (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. desember 2008 kl. 13:58 eftir Helgi161 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Helgi Guðjónsson bifvélavirkjameistari frá Dölum fæddist 5. marz 1947 í Eyjum. Foreldrar: Guðjón Jónsson, f. 13.des 1913 d. 30 mars 2001 og k.h. Helga Þuríður Árnadóttir, f. 15 maí1918 d. 8.des 2008.

Maki (10. des. 1966): Inga Dóra Þorsteinsdóttir, f. 1946.
Börn: Ingigerður sjúkraþjálfari, f. 1966; Guðný Helga löggiltur endurskoðandi, f. 1968; Kristín Hrönn kennari, f. 12. febr. 1976 í Rvk.

Guðmundur Helgi lauk sveinsprófi hjá Hreggviði Jónssyni í Eyjum 1966, en meistararéttindi hlaut hann 1969. Hann rak bílaverkstæðið Bílaver í Eyjum frá 1968 til goss. Hann var verkstæðisformaður hjá Véladeild S.Í.S 1973-1982, þjónustustjóri þar 1982-1992. Hann vann hjá Bifreiðaskoðun Íslands (síðar Frumherja) 1992-2000, tjónafulltrúi var hann hjá Tjónamati og skoðun (F.Í.B), síðan hjá Íslandstryggingu í Reykjavík frá 2004.


Heimildir