Arngrímur Pétursson
Arngrímur Pétursson, 1732 til 1740. Foreldrar: Séra Pétur Gissuararson, prestur að Ofanleiti og kona hans, lögsagnara að Hólmum Landeyjum, Eyjólfssonar. Stúdent úr Skálholtsskóla og var í eitt og hálft ár sveinn Þórðar biskups Þorlákssonar. Hafði gegnt allmörgum prestaköllum áður en hann fékk veitingu fyrir Kirkjubæ. Séra Arngrímur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigrún Ólafsdóttir að Heylæk og síðari kona hans var Ragnheiður Markúsdóttir sýslumanss að Ási í Holtum. Hann andaðist 1742 rúmlega áttræður að aldri.