Snið:Grein vikunnar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. september 2007 kl. 16:17 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2007 kl. 16:17 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ginklofi

Árið 1847 var ákveðið að senda Peter Anton Schleisner til Vestmannaeyja og þá var staðan þannig að milli 60 og 80% allra barna sem fæddust lifandi í Vestmannaeyjum dóu úr ginklofa en meðaltalið fyrir Ísland var um 30% og Danmörku milli 15 og 20%.

Schleisner beindi athyglinni fyrst og fremst að umbúnaði naflastrengsins og bar á hann sérstaka olíu, balsamum copaiba, þar til hann féll af. Á fæðingarstofunni voru viðhafðar strangar kröfur um hreinlæti og um mataræði en hvort tveggja líkaði konum illa.

Þegar Schleisner fór aftur til Danmerkur var fæðingarstofan aflögð vegna áhuga- og skeytingarleysis heimamanna og jafnvel þótt héraðslæknirinn Davidsen gerði tillögu um að breyta henni í spítala, sem var vel tekið af dönskum yfirvöldum, þá sýndu innlendir aðilar því engan áhuga.


Lesa meira...