Friðrik Gíslason (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 13:24 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2005 kl. 13:24 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Gíslason var fæddur 11. maí 1870 í Hlíðarhúsi í Vestmannaeyjum. Hann var sonur Gísla bónda og verzlunarmanns Stefánssonar og konu hans Soffíu Lisbeth Andersdóttir frá Stakkagerði. Móðir hennar var Ásdís jónsdóttir. Friðrik stundaði sjóróðra, en varð annars lærður ljósmyndari. Kona hans var Anna Thomsen. Friðrik var fimur, snarpur og fylginn á sér og glímumaður ágætur. Hann kenndi um skeið glímu hjá Glímu- og sundfélagi Vestmannaeyja, sem stofnað var 7. nóvember 1894 með 16 félagsmönnum.


Tekið úr:

Bliki, 23. árg 1962, grein um sögu barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum eftir Þorstein Víglundsson.