Hafsteinn Stefánsson
Hafsteinn Stefánsson fæddist 30. mars 1921 og lést 29. ágúst 1999. Kona hans var Guðmunda Gunnarsdóttir, dóttir Gunnars Marels Jónssonar.
Hafsteinn var skipasmiður og skipaeftirlitsmaður
Hafsteinn var þekktur hagyrðingur og hafði hann þetta að segja um sjálfa vísuna:
- Eitt er sem ég ekki skil
- og engan veginn þekki:
- Hvernig vísa verður til,
- ég veit það bara ekki.
- Þér ég segja þetta vil,
- þar ég engu leyni:
- Svona verður vísa til
- vinurinn minn eini.
- Íslendingum yndi jók
- oft á langri vöku
- ef þeir gátu opnað bók
- eða smíðað stöku.
Hafsteinn bjó á Selfossi er hann lést.
Sjá einnig
- Hafsteinn Stefánsson (kvæði). Kvæði eftir Hafstein í Bliki 1980.