Elías Gunnlaugsson
Elías Gunnlaugsson fæddist 22. febrúar 1922. Faðir hans var Gunnlaugur Sigurðsson frá Gjábakka og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Elíasar voru Gunnlaugur (hálfbróðir), Aðalsteinn Friðrik Þórarinn, Arnoddur, Jón og Ingvar. Systur Aðalsteins voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár. Kona Elíasar er Margrét Sigurjónsdóttir fædd 20. desember 1923. Elías bjó á Boðaslóð 17 en býr nú á Brimhólabraut 5. Þau Elías og Margrét, eða maggý eins og hún er oftast kölluð, eignuðust þrjú börn. Hjördísi fædda 14. október 1946 og tvíburana Björk og Viðar fædd 1. júlí 1956. Viðar spilaði lengi knattspyrnu í Eyjum og dóttir hans og barnabarn Elíasar er knattspyrnukonan landsþekkta Margrét Lára Viðarsdóttir.
Elías var formaður, m.a. á bátunum Veigu og Tjaldi.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Elías:
- Gunnlaugs er grérinn kunni
- gramurinn Elías framur,
- niðji þeirra sá þriðji,
- þekkan ég meina rekkinn.
- Skjaldmögur trúr er Tjaldar
- tíðum í storma hríðum.
- Fína formennsku sýna
- fleyjastjórarnir Eyja.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.