Presthús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júlí 2007 kl. 10:40 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júlí 2007 kl. 10:40 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Presthús
Presthús, hið nýrra

Húsið Presthús stendur við Kirkjubæjarbraut 12.

Presthús voru áður fyrr tvær jarðir og taldar einn völlur en talin heldur kostarýr jörð. Túnin voru skammt frá Vesturhúsatúnum en bærinn sjálfur stóð vestast í Kirkjubæjarþorpinu fram undir aldamótin 1900. Eftir 1940 var ekki skepnuhald að Presthúsum og 1950 keypti Guðmundur Guðjónsson frá Oddsstöðum húsið, endurbyggði það og bjó þar til dauðadags, 1969, ásamt konu sinni, Jórunni Guðjónsdóttur. Húsið fór undir hraun í eldgosinu 1973.

Í húsinu bjuggu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973 hjónin Birgir Indriðason og Fríða Hjálmarsdóttir og börn þeirra Steinar, Gylfi, Ragna og Indriði.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.