Hjálmholt
![](/images/thumb/7/77/Urdavegur_34_hjalmholt.jpg/300px-Urdavegur_34_hjalmholt.jpg)
![](/images/thumb/f/f1/Urdavegur_ibuar_hjalmholti.jpg/250px-Urdavegur_ibuar_hjalmholti.jpg)
![](/images/thumb/b/b9/Urdavegur_34_hjalmholt_oli_hulda_copy.jpg/250px-Urdavegur_34_hjalmholt_oli_hulda_copy.jpg)
Húsið Hjálmholt stóð við Urðarveg 34. Það var reist af Ingibergi Hannessyni á árunum 1910-12. Ingibergur var ævinlega nefndur Bergur í Hjálmholti og þótti hafa mjög róttækar stjórnmálaskoðanir. Hjálmholt var tvíbýlishús og þegar gaus bjuggu í eystri hlutanum Ólafur, sonur Ingibergs, ásamt konu sinni Eyrúnu Huldu Marinósdóttur og syni þeirra. Í vestari hlutanum bjuggu Ólöf Sigvaldadóttir og Sigurlaug Þorsteinsdóttir.