Blátindur (Heimagötu)
Húsið Blátindur stóð við Heimagötu 12b. Húseignin fór undir hraun en hluti hússins er sjáanlegur ferðamönnum og öðrum. Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri, reisti húsið og gaf því nafn eftir Blátindi í Dalfjalli.
Þegar byrjaði að gjósa bjuggu í húsinu Þorsteinn Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir og Anna O. Jónsdóttir.
Eigendur Blátinds byggðu sér nýtt hús eftir gos á Illugagötu 43 og heitir það einnig Blátindur.
Heimildir
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.