Kirkjugarðurinn
Kirkjugarður Vestmannaeyja var fyrsti kirkjugarður á Íslandi sem tekinn var í notkun utan kirkjulóðar. Kirkjur í Vestmannaeyjum voru tvær framan af, að Ofanleiti og Kirkjubæ, og höfðu þær sinn hvorn kirkjugarðinn. Það var ekki fyrr en Landakirkja var reist, að sameiginlegur kirkjugarður var tekinn í notkun. Ekki tíðkaðist að hafa kirkjugarða svo langt frá kirkjum, en það sást æ meira seinna.
Kirkjugarðurinn í gosinu
Eins og allt annað í nágrenninu, þá fór kirkjugarðurinn undir hátt vikurlag. Þykkt öskulagsins var 1,5 - 2,5 metri. Stærð garðsins var einn og hálfur hektari og var öskumagnið um 200 þúsund rúmmetrar. Sjálfboðaliðar, mestmegnis frá útlöndum, komu og grófu garðinn upp með handafli að mestu.
Heimildir
- Páll Zóphóníasson. Kirkjugarður Landakirkju. Sótt 4. júlí 2007 af: www.kirkjugardar.is.