Sævar Tryggvason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2007 kl. 10:01 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2007 kl. 10:01 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sævar Tryggvason fæddist í Vestmannaeyjum 1. júní 1947. Hann lést 26. ágúst 2005. Foreldrar hans eru Tryggvi Ólafsson málarameistari og Þórhildur Stefánsdóttir. Árið 1970 kvæntist Sævar Ástu Sigríði Sigurðardóttur. Þau skildu. Dætur þeirra eru Anna Lilja og Hildur Lind.

Árið 1968 lauk Sævar íþróttafræðiprófi frá Den Jyske Idrætsskole í Danmörku árið 1968. Sveinsprófi í málaraiðn lauk hann árið 1972 og árið 1975 meistaraprófi. Hann starfaði sem málarameistari allan sinn starfsaldur.

Á sínum yngri árum var Sævar einn af efnilegustu knattspyrnumönnum Vestmannaeyja. Hann dvaldi meðal annars við æfingar hjá stórliði Arsenal árið 1967. Hann lék með unglingalandsliðum Íslands og varð fyrsti A- landsliðsmaður ÍBV árið 1969. Hann sneri sér síðan að knattspyrnuþjálfun og þjálfaði meðal annars yngri flokka ÍBV og Vals með góðum árangri.


Heimildir

  • Morgunblaðið. 2.september 2005. Minningargreinar um Sævar Tryggvason.