Eygló Björnsdóttir (Reykholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 13:22 eftir Eyglob (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 13:22 eftir Eyglob (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Björnsdóttir fæddist 19. október 1951 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson og Guðbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka-vestri. Eygló er gift Friðriki Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn, Gunnlaugu Elísabetu, Björn og Jóhann. Eygló ólst upp á Urðavegi 15 og Bakkastíg 23 en eftir það bjó hún með manni sínum og börnum á Strembugötu.

Eygló lauk kennaraprófi 1971 og starfaði sem kennari í Barnaskóla Vestmannaeyja í fjölda mörg ár. Árið 2000 flutti Eygló og fjölskylda til Akureyrar og þar starfar Eygló sem lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri.