Sigurjón Jónsson (formaður)
Sigurjón Jónsson fæddist 2. janúar 1903 og lést 9. apríl 1978. Hann bjó á Brekastíg 5a. Hann var formaður á Örninni VE 173.
Loftur Guðmundsson orti formannsvísu um Sigurjón:
- Harður í dáð með hug og þrótt
- hvergi um linkind semur
- á Örninni hefir Sigurjón sótt
- sæinn mörgum fremur.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Sigurjón:
- Sjonni valinn sonur Jóns
- setur Örn á dýnu.
- Oft í hlíðum fiski fróns
- falar afla á línu.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.