Sigurbergur Hávarðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 11:50 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 11:50 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbergur Hávarðsson rafeindavirki, síðar í Kópavogi, f. 12. nóv. 1927.
For.: Hávarður Þórðarson, f. 1902 og barnsmóðir hans Guðfinna Einarsdóttir, f. 1906.
Stjúpfaðir Sigurbergs var Þórður Elías Sigfússon, f. 1900.
Sigurbergur ólst upp hjá móður sinni og stjúpföður. Hann hóf störf í rafvirkjun hjá Haraldi Eiríkssyni, lauk námi í útvarpsvirkjun (rafeindavirkjun) hjá Viðgerðarstofu Útvarpsins í Reykjavík 1950.
Hann vann síðan við rafeindavirkjun í Eyjum til goss 1973. Hjá Heimilistækjum ehf. í Reykjavík vann hann í allmörg ár, og kennari við Iðnskólann í Reykjavík var hann frá 1977-1998.
Kona (17. apríl 1954): Anna Petrína Ragnarsdóttir húsfreyja, f. 30. sept. 1930.
Börn þeirra:

  1. Eyþór, f. 1954,
  2. Ómar, f. 1958,
  3. Ívar, f. 1963,
  4. Edda, f. 1965,
  5. Ester, f. 1968.

Heimildir