Magnús Tómasson (formaður)
Magnús Tómasson fæddist á Hrútafelli undir Eyjafjöllum 28. desember 1876 og lést 22. september 1941. Ungur kom hann til Vestmannaeyja og var upphaflega háseti hjá Magnúsi Guðmundssyni á Vesturhúsum. Árið 1906 keypti hann Elliða og var formaður á honum til 1912. Þá hætti hann formennsku og gerðist bóndi. Magnús bjó í Mandal við Njarðarstíg.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Magnús:
- Maggi þéttur flóðs í fang
- færir trillu greiða,
- strangan þegar straumavang
- stefnir einn til veiða.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.