Magnús Tómasson (formaður)

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Magnús Tómasson fæddist á Hrútafelli undir Eyjafjöllum 28. desember 1876 og lést 22. september 1941. Ungur kom hann til Vestmannaeyja og var upphaflega háseti hjá Magnúsi Guðmundssyni á Vesturhúsum. Árið 1907 keypti hann Elliða og var formaður á honum til 1912. Þá hætti hann formennsku og gerðist bóndi í Steinum A-Eyjafjöllum. Magnús bjó í Mandal við Njarðarstíg. Hann lést 1941.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.