Elías Gunnlaugsson
Elías Gunnlaugsson fæddist 22. febrúar 1922. Faðir hans var Gunnlaugur Sigurðsson frá Gjábakka. Bræður Elíasar voru Aðalsteinn og Arnoddur. Elías bjó á Boðaslóð 17 en býr nú á Brimhólabraut 5. Eitt af börnum hans er Viðar, knattspyrnumaður, og barnabarn Elíasar er knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir.
Elías var formaður, m.a. á bátunum Veigu og Tjaldi.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Elías:
- Gunnlaugs er grérinn kunni
- gramurinn Elías framur,
- niðji þeirra sá þriðji,
- þekkan ég meina rekkinn.
- Skjaldmögur trúr er Tjaldar
- tíðum í storma hríðum.
- Fína formennsku sýna
- fleyjastjórarnir Eyja.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.