Ingólfur Matthíasson (Byggðarenda)
Ingólfur Símon Matthíasson fæddist 17. desember 1916 og lést 18. október 1999. Hann bjó að Hólagötu 20. Síðustu árin bjó hann á Hraunbúðum. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Júlía Sveinsdóttir og Matthías Gíslason á Byggðarenda. Ingólfur var eldri bróðir Óskars Matthíassonar.
Ingólfur var skipstjóri á Haferni VE.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Ingólf:
- Annar hér æginn kannar
- arfi Matthías djarfur,
- grér þann í veiði veri
- veit ég með Ingólfs heiti.
- Frosta í Ránar rosta
- rakkur siglir nú frakkur.
- Képpinn fisk hraður hreppir,
- hugaður víkings maður.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.