Helgi Benónýsson (Vesturhúsum)
Helgi Benónýsson fæddist 23. apríl aldamótaárið 1900. Foreldrar hans voru Benóný Helgason og Guðný Magnúsdóttir. Helgi ólst upp í Skorradal en flutti til Vestmannaeyja þegar hann var 28 ára. Þá hafði hann haft ýmsa starfa og gengið á búnaðarskóla. Helgi var mikill athafnamaður á sviði landbúnaðar og jarðræktar í Vestmannaeyjum en einnig var hann með talsverð umsvif í útgerð. Hann bjó að Vesturhúsum og var oft kenndur við heimili sitt, Helgi á Vesturhúsum, en einnig fékk hann annað viðurnefni, var oft kallaður Helgi vindill og var ástæðan sú að hann var mikill vindlareykingamaður og sást helst ekki öðru vísi en með vindil uppi í sér.