Anna Sigfúsdóttir Johansen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. febrúar 2026 kl. 12:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. febrúar 2026 kl. 12:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Anna Sigfúsdóttir Johansen''' húsfreyja fæddist 14. mars 1930 og lést 9. september 2018.<br> Foreldrar hennar voru Sigfús Hallgrímsson barnakennari, skólastjóri, frumkvöðull í skólamálum aðventista á Íslandi, f. 8. september 1904, d. 13. október 1991, og kona hans Sigurlaug ''Kristín'' Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 29. ágúst 1893, d. 12. janúar 1949. Þau Svein giftu sig, eignuðust þ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigfúsdóttir Johansen húsfreyja fæddist 14. mars 1930 og lést 9. september 2018.
Foreldrar hennar voru Sigfús Hallgrímsson barnakennari, skólastjóri, frumkvöðull í skólamálum aðventista á Íslandi, f. 8. september 1904, d. 13. október 1991, og kona hans Sigurlaug Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 29. ágúst 1893, d. 12. janúar 1949.

Þau Svein giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Austurlöndum.

I. Maður Önnu er Svein B. Johansen, norskur maður, sem verið hefur deildarstjóri, prestur, fyrirlesari og forstöðumaður, en stýrði umfangsmiklu deildarstarfi á vegum aðventista í Austurlöndum nær.
Börn þeirra:
1. Per Birger, læknir í Lundi í Svíþjóð.
2. Mark Eric, fulltrúi flugfélagsins SAS í Kaupmannahöfn.
3. Linda María , sérfræðingur í hjartaendurhæfingu í Khöfn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.