Ingólfur Kristjánsson (sjómaður)
Ingólfur Haukur Kristjánsson sjómaður, stýrimaður fæddist á Akureyri 20. október 1966 og lést 18. mars 2021.
Foreldrar hans voru Kristján Sigmar Ingólfsson, f. 26. maí 1943, d. 7. maí 1990, og Linda Steingrímsdóttir, f. 19. nóvember 1946.
Ingólfur eignaðist barn með Paulu Kristínu 1987.
Hann eignaðist barn með Ingu Dóru 1995.
Þau Sigrún Hildur giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Kópavogi.
I. Barnsmóðir Ingólfs er Paula Kristín Buch húsfreyja, hársnyrtir, grunnskólakennari, f. 26. desember 1966.
Barn þeirra:
1. Elísabet Lind Ingólfsdóttir, f. 30. apríl 1987.
II. Barnsmóðir Ingólfs er Inga Dóra Halldórsdóttir, f. 5. september 1968.
Barn þeirra:
2. Rakel Ingólfsdóttir, f. 14. ágúst 1995.
III. Kona Ingólfs, (1. september 1971), er Sigrún Hildur Werner Guðmundsdóttir, f. 11. júlí 1971. Foreldrar hennar Ingi Fridthjofsson, f. 24. nóvember 1951, og Ingibjörg Helena Guðmundsdóttir, f. 8. júní 1953.
Barn þeirra:
3. Kristján Ingi Ingólfsson, f. 24. nóvember 2004.
Barn Sigrúnar Hildar:
4. Jakob Freyr Atlason, f. 10. nóvember 1992.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.