Elínborg Bárðardóttir (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2025 kl. 14:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2025 kl. 14:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Elínborg Bárðardóttir á Elínborg Bárðardóttir (læknir))
Fara í flakk Fara í leit

Elínborg Bárðardóttir læknir, sérfræðingur í heimilislækningum, fæddist 26. maí 1960 á Austurvegi 4 í Eyjum.
Foreldrar hennar Bárður Auðunsson skipasmíðameistari, f. 2. nóvember 1925, d. 10. desember 1999, og kona hans Ebba Þorsteinsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður, f. 19. maí 1927, d. 14. október 1987.

Börn Ebbu og Bárðar:
1. Steinunn Bárðardóttir, húsfreyja og dagmóðir, lærð hárgreiðslukona, f. 12. september 1949. Maki: Ísak Möller rekstrarstjóri.
2. Herjólfur bátasmíðameistari, f. 29. mars 1953. Kona hans er Ragnhildur Mikaelsdóttir húsfreyja frá Húsavík
3. Auður Bárðardóttir geðhjúkrunarfræðingur, f. 6. ágúst 1956. Maki: Þröstur Björgvinsson sálfræðingur.
4. Elínborg Bárðardóttir læknir, f. 26. maí 1960. Maki: Ólafur Þór Gunnarsson læknir.
5. Ásta Bárðardóttir kennari, f. 29. október 1961. Maki: Páll Kolka Ísberg sérfræðingur, skilin.

Þau Ólafur Þór giftu sig 1989, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Elínborgar, (19. ágúst 1989), er Ólafur Þór Gunnarsson læknir, sérfræðingur í öldrunarlækningum, f. 17. júlí 1963, Foreldrar hans Gunnar Pétursson bifreiðastjóri á Ísafirði, síðar landpóstur, f. 31. mars 1930, d. 4. maí 2022, og Guðrún Ólafía Sigurgeirsdóttir gjaldkeri, f. 5. júlí 1932, d, 9. september 1985.
Börn þeirra:
1. Helgi Hrafn Ólafsson, f. 24. janúar 1988. Unnusta hans Anna K. Gunnarsdóttir.
2. Hjalti Már Ólafsson, f. 11. maí 1992. Unnusta hans Helena Rut Örvarsdóttir.
3. Oddur Örn Ólafsson, f. 1. október 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.