Guðjón Jóhannes Kristjánsson
Guðjón Jóhannes Kristjánsson, sjómaður, nú vélvirki hjá Norðuráli, fæddist 9. júlí 1968.
Foreldrar hans Kristján Jóhannesson, kennari, vélfæðingur, vélvirkjameistari, f. 21. febrúar 1945, og kona hans Vigdís Hallfríður Guðjónsdóttir, húsfreyja, kennari, f. 27. október 1946.
Börn þeirra:
1. Guðjón Jóhannes Kristjánsson sjómaður, f. 9. júlí 1968, ókv.
2. Jóna Kristjánsdóttir skrifstofumaður, f. 18. maí 1971. Fyrrum maður hennar Hlynur Guðmundsson. Maður hennar Gísli Matthías Gíslason.
3. Ingibjörg Kristjánsdóttir skrifstofustjóri í eigin fyrirtæki, f. 3. júlí 1977. Maður hennar Björn Steinar Unnarsson.
Guðjón er ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.