Kethellir
Kethellir er hellir í i ekki langt frá Hundraðmannahelli og er hellisgjögur. Hann er hátt í tvo metra á hæð. Inni í honum eru bríkur, sillur og hillur. Þjófar höfðu þar aðsetur fyrr á tímum þegar hellirinn var ekki alkunnur og ber nafn af því. Nú hefur verið tyrft yfir hann en hann er undir einkalóð.
Heimildir
- Þorkell Jóhannesson. Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.