Guðrún Ósk Jóhannesdóttir
Guðrún Ósk Jóhannesdóttir, safnvörður hjá Sagnheimum, fæddist 14. nóvember 1992.
Foreldrar hennar Jóhannes Óskar Grettisson, húsasmiður, f. 27. mars 1958, og kona hans Elín Laufey Leifsdóttir, húsfreyja, skólaliði, f. 12. apríl 1958.
Börn Elínar og Jóhannesar:
1. Grettir Jóhannesson, f. 19. apríl 1982.
2. Leifur Jóhannesson, f. 27. nóvember 1985.
3. Guðrún Ósk Jóhannesdóttir, f. 14. nóvember 1992.
Guðrún Ósk er ógift og barnlaus.
Hún býr við Ásaveg 5.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðrún Ósk.
- Heimaslóð.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.