Kethellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 14:40 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2007 kl. 14:40 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kethellir er hellir nálægt Hundraðmannahelli í Bessahrauni og er hann hellisgjögur. Hann er hátt í tvo metra á hæð. Inn í honum eru bríkur, sillur og hillur. Þjófar höfðu þar aðsetur fyrr á tímum þegar hellirinn var ekki alkunnur og ber nafn af því. Nú hefur verið tyrft yfir hann en hann er undir einkalóð.


Heimildir

  • Þorkell Jóhannesson. Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1938.