Adda Jóhanna Sigurðardóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. október 2024 kl. 12:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. október 2024 kl. 12:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Adda Jóhanna Sigurðardóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hér vantar mynd

Adda Jóhanna Sigurðardóttir er fædd 6. ágúst 1964. Gosnóttina 1973 bjó hún að Austurhlíð 1 ásamt foreldrum sínum þeim Fríðu og Sigurði og systur sinni Sigurbáru og Jóni Inga bróður sínum.

Eiginmaður hennar heitir Magnús Bragason og saman reka þau Hótel Vestmannaeyjar.

Frekari umfjöllun

Adda Jóhanna Sigurðardóttir, grunnskólakennari fæddist 6. ágúst 1964.
Foreldrar hennar Sigurður Georgsson, skipstjóri f. 1. mars 1941, d. 4. febrúar 2023, og Guðný Fríða Einarsdóttir, húsfreyja, f. 12. júní 1941.

Þau Magnús giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Helli við Vestmannabraut 13b.

I. Maður Öddu Jóhönnu er Magnús Bragason, kjötiðnaðarmaður, hótelstjóri, f. 26. nóvember 1965.
Börn þeirra:
1. Daði Magnússon, f. 5. nóvember 1988.
2. Bragi Magnússon, f. 13. júní 1990.
3. Friðrik Magnússon, f. 1. júlí 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.