Sólrún Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sólrún Magnúsdóttir frá Vilborgarstöðum, húsfreyja á Skammbeinsstöðum í Holtahreppi, Rang., Berustöðum í Ásahreppi, Rang. og Sandhólaferju í Djúpárhreppi, Rang. fæddist 1699 og lést á árunum 1762-1766.
Foreldrar hennar voru Magnús Erlendsson bóndi, f. 1659, og Þorgerður Þorsteinsdóttir, f. 1665.

Börn Þorgerðar og Erlendar:
1. Helga Magnúsdóttir, f. 1689.
2. Sólrún Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 1699.

Þau Ólafur Jónsson giftu sig, eignuðust 15 börn. Þau bjuggu á Skammbeinsstöðum í Holtahreppi, Rang.
Þau Jón Bárðarson giftu sig. Þau bjuggu á Berustöðum 1753, á Sandhólaferju í Djúpárhreppi, Rang. 1759 og 1762.

I. Maður Sólrúnar var Ólafur Jónsson bóndi á Skammbeinsstöðum í Holtahreppi, Rang., f. 1697. Foreldrar hans voru Jón Torfason prestur á Breiðabólstað, f. 1657, d. 1716, og kona hans Sigríður Björnsdóttir, f. 1659, d. 1716.
Börn hér nefnd:
1. Þorgerður Ólafsdóttir, f. 1723.
2. Sigríður Ólafsdóttir, húsfreyja á Syðri-Rauðalæk í Holtum, f. 1724.
3. Jón Ólafsson, f. 1725.
4. Magnús Ólafsson, bóndi á Skammbeinsstöðum, f. 1726.
5. Kristín Ólafsdóttir, f. 1729.
6. Vilborg Ólafsdóttir, húsfreyja í Köldukinn í Holtum, f. 1730.
7. Páll Ólafsson, bóndi á Efri-Hömrum, f. 1734.

II. Maður Sólrúnar var Jón Bárðarson bóndi á Berustöðum í Ásahreppi, f. 1720, d. 4. desember 1804. Foreldrar hans voru Bárður Jónsson prestur í Guttormshaga, f. 1690, d. 5. júní 1755, og kona hans Ragnhildur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1686, var á lífi 1756.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók I – Holtahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra, Hellu 2006.
  • Íslendingabók.
  • Jón Espólín, dálkur 312 og 313.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.