Heiðar Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. júní 2024 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. júní 2024 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigvaldi ''Heiðar'' Árnason''', sjómaður fæddist 4. september 1933 í Svínadal í Kelduhverfi og lést 10. janúar 1979.<br> Foreldrar hans voru Árni Ingimundur Kristjánsson, f. 24. ágúst 1909, í, d. 6. febrúar 1979, og Guðný Sigvaldadóttir, húsfreyja, f. 15. október 1911, d. 21. nóvember 1988. Heiðar ólst upp hjá móður sinni og Bjartmari Baldvinssyni á Sandhólum á Tjörnesi.<br> Hann flutti til Eyja 1954, stundaði sjómennsku.<br> Þau Inga giftu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigvaldi Heiðar Árnason, sjómaður fæddist 4. september 1933 í Svínadal í Kelduhverfi og lést 10. janúar 1979.
Foreldrar hans voru Árni Ingimundur Kristjánsson, f. 24. ágúst 1909, í, d. 6. febrúar 1979, og Guðný Sigvaldadóttir, húsfreyja, f. 15. október 1911, d. 21. nóvember 1988.

Heiðar ólst upp hjá móður sinni og Bjartmari Baldvinssyni á Sandhólum á Tjörnesi.
Hann flutti til Eyja 1954, stundaði sjómennsku.
Þau Inga giftu sig 1955, eignuðust sjö börn. Þau bjuggu við Vesturveg 11 og 34, og Skólaveg 12, en síðast á Hólabraut 4 í Hrísey í Eyjafirði.
Heiðar lést 1979 og Inga 1990.

I. Kona Heiðars, (31. desember 1955), var Inga Hallgerður Ingibergsdóttir frá Sandfelli við Vestmannabraut 36, húsfreyja, f. 21. maí 1937, d. 12. desember 1990.
Börn þeirra:
1. Árný Heiðarsdóttir, húsfreyja, f. 2. apríl 1955 í Eyjum.
2. Guðný Kristín Heiðarsdóttir, húsfreyja, f. 14. apríl 1956 að Vesturvegi 11.
3. Þorvaldur Heiðarsson, vélstjóri, f. 11.janúar 1958 að Vesturvegi 34.
4. Lovísa Heiðarsdóttir, húsfreyja, f. 23. október 1959 á Sj.
5. Ingibjörg Heiðarsdóttir, f. 16. desember 1960 að Vesturvegi 34.
6. Edda Heiðarsdóttir, húsfreyja, f. 21. apríl 1964 í Eyjum.
7. Karel Heiðarsson, vistmaður á Sólborg á Akureyri, f. 15. maí 1968 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.